A A A

Ferðastyrkjaáætlunin

Norræn- Eystrasalts ferða- og dvalarstyrkjaáætlunin fyrir menningu er opin fyrir umsækjendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Eystrasaltslöndin taka þátt í fjármögnun og ákvarðanatöku varðandi áætlunina ásamt Norðurlöndunum.

Með umsókn skal fylgja 300 orða samantekt á ensku.

Norræna-Eystrasaltsáætlunin er þverfagleg heildaráætlun sem veitir styrki til:

Ferðalaga einstaklinga
Uppbyggingar tengslaneta fyrir fagfólk í listum og menningarstarfi
Dvalarsetra

Áætlunin er fyrir fagfólk í listum og menningarstarfi:

▪ Listamenn
▪ Framleiðendur
▪ Þá sem starfa við hverskonar listir og menningu

Árið 2012 úthlutar ferðaáætlunin alls 1.6 milljónum € (12 milljónum DKK). Af því renna ca 382 000 € til dvalarsetra, en hinn hlutinn skiptist á milli ferðastyrkja og styrkja til uppbyggingar tengslaneta.

Ráðgjafi áætlunarinnar er Annika Söderlund.

GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR