Get ég sótt um gististyrk fyrir dvöl á öðrum stað í eigin heimalandi?
Nei. Styrkir eru einungis veittir til dvalar í öðru norrænu landi eða Eystrasaltsríki en þú býrð í.
Get ég sótt um styrk fyrir ferðakostnaði? ATH! Hér er um að ræða matsþætti fyrir styrki veitta fyrir árslok 2011
Gististyrkir eru styrkir til sjö sólarhringa dvalar í einhverju Norðurlandanna eða Eystrasaltsríki. Styrkurinn á að standa straum af kostnnaði við dvölina, s.s. gistingu, ferðir með almenningssamgöngum milli staða o.þ.h. Þeir sem eru búsettir í Vestnorrænu löndunum geta sótt um ferðastyrk frá Íslandi, Færeyjum eða Grænlandi ef ferðast er til annarra norrænna landa eða Eystrasaltsríkja.
Hvenær get ég í hafið ferðalagið?
Ferðalagið getur hafist í fyrsta lagi tveimur mánuðum eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Get ég sótt um dvalarstyrk sem einstaklingur?
Nei. Dvalarstyrkjaáætlunin (2010-2011) er tímabundin áætlun einungis ætluð dvalarsetrum á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum. Þú getur hinsvegar sótt um dvöl beint til dvalarsetranna. Miðstöðvarnar ákveða sjálfar umsóknarreglur og -fresti og bera ábyrgð á vali listamanna til dvalar.
Er enþá aðstaða til dvalar fyrir listamenn á Sveaborg?
Ja. Hafið samband við HIAP (www.hiap.fi).
Hvað er átt við með "eigin framlagi"?
Eigið vinnuframlag getur fallið undir eigin kostnað við gerð kostnaðaráætlunar verkefnis. Útreikningar vinnutíma skulu tilteknir nákvæmlega í kostnaðaráætlun umsóknar og samtalan verður að geta talist sanngjörn svo verkefnið nái fram að ganga.
Ef ég sæki um tengslanetstyrk til lengri tíma á ég að sækja um heildarupphæðina til þriggja ára eða upphæðina sem ég óska eftir að fá árlega í þrjú ár?
Þú átt að sækja um heildarupphæðina.
Hvaða merki (lógó) á ég að nota?
Allir sem fengu ferða- og dvalarstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni árin 2007 og 2008 eiga að nota merki Ráðherranefndarinnar í tengslum við verkefni sín. Verkefni sem fá styrk á vegum Norrænu Eystrasaltsáætlunarinnar 2009 og eftir það eiga að nota eigið merki áætlunarinnar.
Get ég sótt um áframhaldandi styrk fyrir tengslanet til styttri tíma áður en ég lýk verkefni sem ég hef áður fengið styrk til?
Nei. Þú verður að ljúka fyrra verkefninu áður en þú getur sótt um framlengingu. Það er þó engin trygging fyrir því að þú fáir áframhaldandi styrk.
Hversu fljótt fæ ég peningana eftir að hafa skila skýrslu?
Styrkur er greiddur út u.þ.b. tveimur vikum eftir að skýrslan hefur verið samþykkt.
Get ég fengið að vita hvort verkefnið mitt hafi hlotið styrk áður en staðfestingarbréfin eru send út?
Nei. Allar ákvarðanir eru teknar af sérfræðinganefndinni og staðfestingar- og höfnunarbréf eru send út samtímis til allra umsækjenda.