A A A

Dvalarstyrkir

Dvalarstyrkir eru ætlaðir til allrar lista- og menningarstarfsemi á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum: Fagfólks innan allra listgreina, höfunda fagurbókmennta, þýðenda, sýningarstjóra, framleiðenda, blaðamanna sem starfa við menningartengt efni, menningarfræðinga o.s.frv.

  • Fagfólk getur sótt um dvalarstyrk til annars lands en það er búsett í, á Norðurlöndunum eða í Eystrasaltslöndunum
  • Dvalarstyrkur stendur straum af kostnaði fyrir 1-10 daga dvöl, miðað við útreiknaðan kostnað skv. tveimur flokkum ( höfuðborgarsvæði og annað svæði)
  • Athugið að umsækjandi og styrkþegi verður að vera sama manneskjan
  • Styrkir eru ætlaðir einstaklingum og smærri hópum (mest 6 manna)
  • Ef um hópumsókn er að ræða, verða allir meðlimir hópsins að ferðast á sama tíma, frá sama brottfararstað til sama áfangastaðar
  • Sérfræðingar ákveða hvort og þá hverjum úr hópnum verður veittur styrkur
  • Hver aðili getur einungis sent eina umsókn á hverju umsóknarferli
  • Athugið að fyrst er mögulegt að ferðast tveimur mánuðum eftir að umsóknarfrestur rennur út

Per diem pdf_button

Travelgrant pdf_button

Gamlar viðmiðunarreglur fyrir styrki sem veittir eru  fyrir árslok 2011

Dvalarstyrkir eru ætlaðir til allrar lista- og menningarstarfsemi á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum: Fagfólks innan allra listgreina, höfunda fagurbókmennta, þýðenda, sýningarstjóra, framleiðenda, blaðamanna sem starfa við menningartengt efni, menningarfræðinga o.s.frv.

  • Fagfólk getur sótt um dvalarstyrk til annars lands en það er búsett í, á Norðurlöndunum eða í Eystrasaltslöndunum
  • Dvalarstyrkur stendur straum af kostnaði fyrir mest 7 daga dvöl (5 virkir dagar + helgi), miðað við útreiknaðan kostnað skv. tveimur flokkum ( höfuðborgarsvæði og annað svæði)
  • Athugið að umsækjandi og styrkþegi verður að vera sama manneskjan og styrkur er einungis veittur til einstaklinga, ekki hópa
  • Athugið að fyrst er mögulegt að ferðast tveimur (2) mánuðum eftir að umsóknarfrestur rennur út
    Dvalarstyrkur í 7 sólarhringa Höfuðborgarsvæði Annað svæði
    Danmörk € 1 400 € 1 100
    Finnland € 1 400 € 1 100
    Ísland € 1 400 € 1 100
    Noregur € 1 600 € 1 200
    Svíþjóð € 1 400 € 1 100
    Færeyjar € 1 100 € 800
    Grænland € 1 100 € 800
    Álandseyjar € 1 100 € 800
    Eistland € 1 100 € 800
    Lettland € 1 100 € 800
    Litháen € 1 100 € 800

    Ferðastyrkir

    • Ferðastyrkir eru yfirleitt ekki veittir. Þeir sem hafa  hlotið dvalarstyrki eru hvattir til að sækja um ferðastyrk til tveggjalanda sjóða eða innanlandssjóða.
    • Yfirleitt eru ekki veittir styrkir til ferða frá einu Norðurlandi til annars né frá einu Eystrasaltslandi til annars.

    Ferðastyrki er hægt að veita í eftirfarandi tilfellum:

    Ferðir til og frá Vestnorrænu löndunum

    • Veittir eru ferðastyrkir frá Vestnorrænu löndunum (Íslandi, Færeyjum og Grænlandi) til hinna Norðurlandanna eða Eystrasaltslandanna og öfugt
    • Upphæð ferðastyrks miðast við kostnaðaráætlun umsóknar
    • Ekki er sett hámark á ferðastyrk, en umsækjandi þarf að gera grein fyrir öllum kostnaðarliðum

    Ferðir á milli Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna

    • Einstaklingar búsettir á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum geta sótt um styrk til að ferðast frá Eystrasaltslöndum til Norðurlandanna og öfugt
    • Hámarksupphæð er 350 € og reiknast á grundvelli kostnaðaráætlunar

      GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR