A A A

Hverjir geta sótt um?

Innan Norrænu- Eystrasaltsáætlunarinnar eru þrír flokkar og geta eftirfandi sótt um styrki úr þeim:

Ferðastyrkir:

  • Fagfólk í listum og menningarstarfi á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum
  • Frá árinu 2012 einnig smærri hópar (mest 6 manna), sem uppfylla skilyrði hér að ofan, sem ferðast á sama tíma, frá sama brottfararstað til sama viðkomustaðar
  • Styrkir eru almennt ekki veittir opinberum starfsmönnum eða embættismönnum við opinberar stofnanir
  • Námsmönnum er bent á að nýta
  • Nordplus áætlunina

Styrkir til tengslaneta

  • Allar lista- og menningarstofnanir á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum, einnig samtök og fagfólk í í öllum geirum menningar og listar
  • Ný tengslanet og samstarf varðandi fjölbreytta menningu og samstarf ólíkra list- og menningargreina njóta forgangs
  • Tengslanetið þarf að innihalda samstarfsaðila sem :
    a) eru frá minnst þremur norrænum löndum eða Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum, eða
    b) minnst þremur Eystrasaltslöndum, eða
    c) er samblanda sem inniheldur minnst þrjá samstarfsaðila, frá minnst þremur norrænum löndum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum, eða Eystrasaltslöndunum.
  • Frá þessari reglu er hægt að víkja af menningarpólitískum ástæðum
  • Tengslanetið getur einnig innfalið aðila sem ekki eru starfandi á Norðurlöndunum eða í Eystrasaltsríkjunum

Styrkir til dvalarsetra

  • Allar lista- og menningarstofnanir á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum
  • Samtök og hópar með frumkvæði varðandi dvalarsetur
  • Einstaklingar geta ekki sótt um

GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR