Matsþættir
Eftirfarandi kröfur eiga við um ferðaáætlun Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna. Athugið að matsþættir eru breytilegir eftir því undir hvaða hluta áætlunarinnar umsókn fellur.
Matsþættir fyrir ferðastyrki
- Áhersla er lögð á verkefni með sterka skírskotun til Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna
- Áhersla er lögð á gæði, nýjar samsetningar og frumkvæði
- Áhersla er lögð á aukna miðlun og virkni á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum
Matsþættir fyrir tengslanetsstyrki til styttri tíma
- Tengslanetið skal hafa skýr markmið og skýra tímaáætlun
- Tengslanetið skapi ný tengsl innan síns svæðis og nái út til annarra tengslaneta
- Tengslanetið er sett upp til að efla listrænt frumkvæði og koma á ferlum og samstarfi
Matsþættir fyrir tengslanetsstyrki til lengri tíma
- Tengslanetið skal hafa skýr markmið
- Tengslanetið er frjótt, býr yfir skapandi hugmyndum og frumkvæði
- Tengslanetið er gagnsætt og tjáskipti aðgengileg
- Tengslanetið dreifir upplýsingum um starfsemi sína og árangur
Matsþættir fyrir styrki til dvalarsetra
- Dvalarsetrið haldi úti samfelldri starfsemi fyrir fagfólk í listum og menningarstarfi
- Dvalarsetrið er þátttakandi í samtímalist og -menningu
- Dvalarsetrið hafi skýr markmið og vilja til að styðja við nýsköpun í listrænu starfi
- Dvalarsetrið hafi getu til að styðja við starf styrkþega
- Dvalarsetrið hafi getu til að veita fleiri en einum listamanni í einu starfsaðstöðu og er í sannanlegu samstarfi við listageirann á sínu svæði
- Dvalarsetrið hafi að markmiði að mynda sambönd á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum sem og á alþóðavísu