A A A

Styrkir til tengslaneta

Þú getur sótt um styrk fyrir uppbyggingu tengslanets innan lista-og menningargeirans á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum.

Að vinna með öðrum, þróun samstarfs og læra af reynslu annarra, er meginmarkmið tengslaneta. Tengslanet auka sambönd, efla skipti á reynslu og auka þannig þekkingu. Tengslanet virkar sem menningar-, listræn- og félagsleg tenging á milli stofnana, hópa og/eða einstaklinga

Tengslanetsstyrkur til styttri tíma:

  • Styrkur fyrir allt að eins árs starfsemi
  • Hámarksupphæð er 25.000 €
  • Í mesta lagi 70% af heildarkostnaði
  • Tengslanetið sér um aðra fjármögnun og gerir grein fyrir henni í umsókn
  • Tengslanet sem hefur náð góðri virkni getur sótt um tengslanetsstyrk til lengri tíma

Tengslanetstyrkur til lengri tíma:

  • Styrkur fyrir allt að þriggja ára starfsemi
  • Hámark er 150 000
  • Í mesta lagi 50% af heildarkostnaði<
  • Tengslanetið sér um aðra fjármögnun og gerir grein fyrir henni í umsókn

Helstu skilyrði fyrir tengslanetsstyrk

Tengslanetið skal innihalda samstarfsaðila sem eru:
a)  frá minnst þremur norrænum löndum eða Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum, eða
b) minnst þremur Eystrasaltslöndum, eða
c) eru samblanda af  minnst þremur samstarfsaðilum, frá  Norðurlöndunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum, eða Eystrasaltslöndunum.
Frá þessari reglu er hægt að víkja af menningarpólitískum ástæðum. Tengslanetið getur einnig falið í sér aðila sem ekki eru starfandi á Norðurlöndunum eða í Eystrasaltslöndunum.


    GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR