Þú samþykkir samninginn við Norrænu menningargáttina með því að fylla inn bankauppýsingar inn á notendalýsingu þína. Síðan greiðum við út fyrsta hlut styrksins.
Upphæð fyrsta hluta styrksins fer eftir stærð styrksins. Ef styrkurinn er minni en € 30 000, greiðist 85% af heildarupphæðinni. Ef verkefni þitt fær hærri styrk en € 30 000 er fyrsta greiðslan 45% af heildarupphæðinni.
Næst: Skýrslugerð