Öll verkefni þurfa að gefa skýrslu til Norrænu menningargáttarinnar. Stærri verkefni þurfa að senda inn stöðuskýrslu þegar verkefnið er hálfnað ásamt því að gera lokaskýrslu. Fyrir minni verkefni er nóg að gera lokaskýrslu.
Ef þér hefur verið veittur hærri styrkur en € 30 000 þá þarftu að senda inn stöðuskýrslu og uppgjör þegar verkefnið er hálfnað. Þegar Norræna menningargáttin hefur samþykkt stöðuskýrsluna og uppgjörið, verður greitt 40% af styrknum inn á reikninginn þinn.
Allir sem hafa fengið styrk þurfa að gera lokaskýrslu. Lokaskýrsla sendist í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að verkefni lýkur. Uppgjör sendist ef þú hefur fengið tengslanetsstyrk, ferðastyrk til vestnorrænu landanna (Færeyjar, Grænland, Ísland) eða þegið styrk úr list- og menningaráætluninni.
Ef styrkur er hærri en € 30 000, verða reikningar verkefnis að vera yfirfarnir og undirritaðir af löggiltum endurskoðanda.
Þegar lokaskýrsla og uppgjör hafa verið samþykkt, er síðasti hluti greiðslu, 15% af heildarupphæð greiddur inn á bankareikning styrkþega.