A A A

Algengar spurningar um menningar- og listaáætlunina

Hvað er átt við með þróun?

Meginmarkmið menningar- og listaáætlunarinnar er þróun. Í áætluninni er hugtakið þróun skilgreint sem ný túlkun, endurnýjun, nýskapandi aðferðir og framsetning.

Hvað er átt við með miðlun?

Áætlunin leggur mikla áherslu á þróun í gegnum miðlun til almennings sem og innbyrðis meðal atvinnufólksins.

Verkefnið mitt er samsett úr mörgum þáttum. Á ég að sækja sérstaklega um styrk fyrir hvern þátt eða má ég sækja um styrk fyrir allt verkefnið í einni umsókn? Hvernig ákveð ég í slíku tilfelli í hvaða grein áætlunarinnar ég sæki um?

Mörg stærri verkefna sem sótt er til fela í sér ýmsa þætti og geta þannig fallið undir matsþætti beggja greina áætlunarinnar. Þú þekkir manna best þitt verkefni, og skalt lesa matsþætti áætlunarinnar vandlega. Þú getur sótt um styrk frá báðum greinum til verkefnisins, en þú getur einnig valið að sækja aðeins til annarrar greinarinnar.Þá skaltu velja grein sem hentar verkefninu þínu best. Sérfræðingarnir hafa reynslu af að lesa umsóknir og gæði verkefnisins þíns er mikilvægast.

Verð ég að hafa útvegað alla norræna samstarfsaðila áður en ég sæki um?

Lögð er þung áhersla á norræn tengsl í verkefninu þegar fjallað er um umsóknina. Ef þú hefur ekki tryggt þér alla samstarfsaðila þegar þú gengur frá umsókninni er mikilvægt að þú nefnir væntanlega þátttakendur og hvernig þeir munu tengjast verkefninu. Sjá athugasemd um breytingar á verkefni.

Get ég sótt um styrk til verkefnis sem þegar er byrjað?

Menningar- og listaáætlunin styrkir ekki verkefni sem eru komin í gang þegar sótt er um og gerðar hafa verið fjárskuldbindingar vegna.

Menningar- og listaáætlunin  styrkir forverkefni, stofnverkefni og verkefni. Get ég sótt um til verkefnis strax eða verð ég að sækja um forverkefni og stofnverkefni á undan?

Þú getur sótt um til verkefnis strax. Hafðu í huga að hafir þú fengið styrk til forverkefnis eða stofnverkefnis þá felst ekki í því loforð um styrk til verkefnis.

Í matsþáttunum stendur að Norræna menningargáttin styrki ekki verkefni og starfsemi sem eru endurtekin. Hvernig snýr það að hátíðum?

Styrkir eru ekki veittir til að fjármagna lista- eða menningarhátíðir. Einstök verkefni og starfsemi innan hátíðar geta fengið styrk ef þau uppfylla matsþætti áætlunarinnar um þróun og miðlun, fela í sér nýja sköpun og túlkun og hafa skýr norræn tengsl.

Get ég fengið styrk til verkefnis sem hefur möguleika til að skila fjárhagslegum hagnaði?

Þú getur ekki fengið styrk til verkefnis sem stefnir að því að skila styrkþega fjárhagslegum hagnaði. Ef skilmálar samningsins eru ekki haldnir, getur Noræna menningargáttin krafist þess að styrkþegi endurgreiði styrkinn að hluta eða í heild.

Hvað er eigið framlag?

Í kostnaðaráætlun verkefnisins getur eigið framlag staðið fyrir vinnuframlag. Útreikningar fyrir vinnframlag eiga að færast í kostnaðaráætlun verkefnisins og summan verður að teljast sanngjörn til að hægt að sé framkvæma verkefnið.

Hvað telst vera umsýslukostnaður?

Áætlunin getur veitt styrk til eigin framlags umsækjanda við umsýslu- og launakostnað. Forsendan er að þessir liðir séu í beinum tengslum við verkefnið og séu nauðsynlegur kostnaður til að hægt að framkvæma verkefnið.

Ég þarf að breyta verkefninu, hvað á ég að gera?

Ef þú þarft að gera breytingar á kostnaðaráætlun, á innihaldi verkefnisins eða umfangi skaltu fá þær samþykktar af Norrænu menningargáttinni áður en þú framkvæmir breytingarnar. Lýstu breytingunum og sendu okkur í tölvupósti og við svörum eins og fljótt og auðið er.

Get ég fengið að vita hvort verkefnið mitt hefur hlotið styrk áður en staðfestingarbréf eru send út?

Nei. Allar ákvarðanir eru teknar af sérfræðinganefndinni og bréf um staðfestingu eða höfnun eru send út samtímis.

Hvaða munur er á Norrænu menningargáttinni og Norræna menningarsjóðnum?

Hægt er að sækja um styrki frá báðum stofnunum til norrænna samstarfsverkefna á sviði menningar og eru markmið þeirra mjög svipuð. Stofnanirnar eru þó mismunandi að gerð og umsóknarferli þeirra ólík.

Norræna menningargáttin fer með stjórn menningaráætlana Norrænu ráðherranefndarinnar. Fjármagn kemur frá Norrænu ráðherranefndinni, en styrkákvarðanir eru teknar af norrænum sérfræðinganefndum.

Norræni menningarsjóðurinn hóf starfsemi sína árið 1967 og hann starfar á grundvelli samnings milli Norðurlandanna. Norræni menningarsjóðurinn er fjármagnaður af Norrænu ráðherranefndinni. Sjóðsstjórn Norræna menningarsjóðsins er skipuð fulltrúum sem valdir eru af Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Styrkákvarðanir eru teknar af stjórninni á grundvelli umsagna norrænna sérfræðinga og aðalskrifstofunnar.

Get ég sótt um styrk til verkefnis, bæði frá Norrænu menningargáttinni og Norrænu ráðherranefndinni?

Já, þú getur það. Almenn markmið og umsóknarforsendur eru mjög svipaðar og oft er mögulegt að sækja um styrk frá báðum sjóðunum til sama verkefnis. Það er þó mikilvægt að skoða matforsendur beggja vel, til að ganga úr skugga um hvaða áætlun henti best fyrir verkefnið þitt.

Norræna menningargáttin og Norræni menningarsjóðurinn deila upplýsingum um umsækjendur sem hafa sótt um styrk frá báðum stofnununum. Einnig er fylgst með að styrkir frá Norrænu sjóðunum dekki ekki allan kostnað verkefnis. Þess vegna hvetjum við umsækjendur til að sækja einnig um styrki í aðra sjóði.

NÝJUSTU SÝNISHORN

20.12.2011

The pollution of the Baltic Sea is a collective crime

Marjukka Korhonen's and Raimo Uunila's media artwork I wanted to go...
27.10.2011

RepNet -a cooperation between dance companies in Northern Europe

RepNet is a network consisting of five dance companies in Northern...
11.10.2011

Taboos in theatre for children and young people

A collaboration between Nordic and Latin American theater people about taboos...
20.09.2011

Momentum - Imagining being here now

Momentum is Norway’s only contemporary art biennale. It has been composed...
12.09.2011

Sami-theme at the Sommelo Folk music festival

Sommelo festival was this year conducted for the sixth time. In...

GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR