Verkefni skal vera í skýru samræmi við matsþætti áætlunarinnar. Eftirfarandi matsþættir eiga við báðar áætlanirnar:
Mikilvægustu matsþættir eru gæði verkefnis og nýsköpun. Þegar fjallað er um umsóknir frá áhugafólki eða sjálfboðaliðum, eru þau verkefni sem unnin eru í samstarfi við atvinnufólk sett í forgang.
Þróun og miðlun:
Meginmarkmið áætlunarinnar er þróun. Með hugtakinu þróun er átt við nýja túlkun, nýsköpun og endurnýjun aðferða, framsetningar- og samstarfsmáta.
Sérstök áhersla er lögð á upplýsingamiðlun og kynningu til almennings og að þáttakandi og starfsumhverfi skiptist á þekkingu og reynslu á mismunandi stigum verkefnis.
Þemu 2010-2012
Menning fyrir börn og unglinga
Fjölbreytileg menning
Norræn menningararfleifð
Árin 2010-2012 verður megináhersla lögð á verkefni tengd menningu fyrir börn og unglinga, fjölbreytilega menningu og norræna menningararfleifð.
Áætlunin hefur enga kvóta og mögulegt er að sækja um styrk fyrir annarskonar þemu.
Norræn tenging
Öll verkefni skulu vera samstarfsverkefni minnst þriggja landa, þar af skulu minnst vera tvö Norðurlönd (Ísland, Noregur, Svíþjóð og Danmörk) og/eða Norræn sjálfstjórnarsvæði (Álandseyjar, Færeyjar og Grænland). Þátttaka getur verið með margvíslegum hætti. Norræn tenging er algert skilyrði fyrir styrkveitingu.
Til að samstarfsverkefni milli Norðurlanda og annarra landa eða svæða komi til álita við styrkúthlutun til verkefna sem heyra undir Menningar- og listaáætlunina, þarf verkefnið að hafa skýra norræna tengingu og vera skýrt framsett í styrkumsókn.
Norðrið í heiminum - heimurinn í norðrinu
Markmið áætlunarinnar er að efla og styðja samstarf milli Norðurlandanna og annarra heimshluta.
Áætlunin leggur áherslu á að gera sýnilega menningarlega fjölbreytni innan landa, svæða og alþjóðlega.
Timarammi áætlunarinnar
Aðeins er hægt að sækja um styrk fyrir viðburði og verkefni sem er verið að frumvinna. Verkefni og viðburðir sem eru endurtekin (árlega, annað hvert ár o.s.frv) geta ekki sótt um styrk.
Ekki er hægt að sækja um styrk til verkefnis sem þegar er byrjað og gerðar hafa verið fjárhagslegar skuldbindingar vegna.
Þróun verkefnisins og vinnuferlar geta staðið í allt að þrjú ár.
Fjárhagslegur hagnaður
Verkefni sem hafa það markmið að skapa styrkþegum fjárhagslegan hagnað eru ekki styrkt.
Markmið lista- og menningaráætlunarinnar:
Að styrkja og efla norrænt samstarf á sviði lista og menningar innan Norðurlandanna með hugtakið „Norðrið í heiminum - heimurinn í norðrinu“ að leiðarljósi.
Að hvetja til nýrra hugmynda og frumkvæðis innan menningar- og listgeirans.
Að stuðla að styrkingu samstarfs í menningar- og listageiranum á Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum og gera þetta samstarf sýnilegt á alþjóðlegum vettvangi.