Hægt er að sækja um styrk til allra þátta verkefnis
Taka skal fram í öllum umsóknum til hvaða gerðar verkefnis sótt er um. Gerð verkefnisins hefur áhrif á upphæð styrks og hvernig verkefnið er fjármagnað að öðru leyti.
Forverkefni
Forverkefni er rannsókn eða kortlagning á forsendum þess að hrinda stærra verkefni í framkvæmd. Styrkur til forverkefnis felur ekki í sér loforð um styrk til stærra verkefnis.
Forverkefni er hægt að fjármagna að fullu með styrk allt að 13 000 evrum (DKR 100 000).
Stofnverkefni
Stofnverkefni er minni gerð, eins konar prufa, á stóru verkefni. Stofnverkefni getur ekki staðið lengur en í eitt ár.
Stofnverkefni er hægt að styrkja með allt að 40 000 evrum (DKR 300 000) en þó aldrei meira en sem nemur 75% af heildarkostnaðaráætlun verkefnisins.
Verkefni
Verkefni er fullkomin eining sem hefur skýrar línur varðandi tíma og kostnað. Verkefni getur að hámarki staðið í þrjú ár.
Verkefni er hægt að styrkja með allt að 100 000 evrum (DKR 750 000) en þó aldrei meira en sem nemur 50% af heildarkostnaðaráætlun verkefnisins.