A A A

Skýrslugerð og greiðslur

Styrkur frá Norrænu menningargáttinni, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina er greiddur út þegar þú hefur samþykkt eftirfarandi fjögur skilyrði fyrir styrkveitingu:

1. Almennir skilmálar

2. Fjárhagsskilmálar

3. Skýrslugerð og reikningsskilmálar

4. Skilmálar varðandi upplýsingar og samskipti

Þegar þú samþykkir samninginn, þá samþykkir þú skilmála sem settir eru af Norrænu menningargáttinni fyrir styrkveitingu. Samtímis þá samþykkir þú einnig að verkefnið er fjárhagslega tryggt að öðru leyti og verkefnið er framkvæmanlegt eins og gefið er upp í styrkumsókn.

Fyrsta greiðslan er innt af hendi þegar Norræna menningargáttin hefur móttekið samþykki þitt fyrir settum skilmálum og athugað uppgefnar bankaupplýsingar.


Skilmálar sem Norræna menningargáttin setur fyrir styrkveitingu:


1. Almennir skilmálar

Styrkinn má einungis nota í þeim tilgangi og innan þess tímaramma sem getið er um í umsókn. Áður en breytingar eru gerðar á verkefnaáætlun, verður umsækjandi að upplýsa Norrænu menningargáttina eins fljótt og mögulegt er og fá skriflegt samþykki fyrir breytingu. Ef Norræna menningargáttin hefur ekki gefið skriflegt samþykki fyrir breytingu, getur umsækjandi verið krafinn um endurgreiðslu styrks að öllu leyti eða að hluta til.

Opinberun upplýsinga

Allar upplýsingar varðandi umsóknir, styrkveitingar og lokaskýrslur, eru opinberar og geta birst á vefsíðu Norrænu menningargáttarinnar eða annarsstaðar.

Ógilding styrkveitingar, endurgreiðslukrafa

Styrkur ógildist ef hann hefur ekki verið nýttur innan eins (1) árs frá styrkveitingu, miðað við dagsetningu á tilkynningu frá Norrænu menningargáttinni.

Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við setta skilmála Norrænu menningargátarinnar, verða eftirstöðvar styrks stöðvaðar og umsækjandi getur verið krafinn um endurgreiðslur á þegar veittum fjármunum. Ef endurgreiðsla er ekki innt af hendi sendir Norræna menningargáttin greiðslukröfu í innheimtu.

Skilmálar varðandi dvalarsetur (vinnustofur)

Styrk skal nota til að greiða kostnað við 2-4 Norræna listamenn. Styrkur skal standa straum af kostnaði við ferðir og dvalarstyrk fyrir tveggja(2) mánaða tímabil, en hann má nota upp að vissu marki fyrir efniskostnaði sem listamaðurinn þarf á að halda í sambandi við vinnu sína. Dvalarsetrin eru sjálf ábyrg fyrir vali á listamönnum. Styrkinn má ekki nota í stjórnunarkostnað.

Dvalarsetrin bera ábyrgð á að skattareglur í viðkomandi landi varðandi styrkina, séu uppfylltar.

2. Fjárhagsskilmálar

Beðið er um greiðslu styrks gegnum notendalýsingu á vefsíðu Norrænu menningargáttarinnar. Tilkynna skal nafn á samtökum (organisation), skráningarnúmer og bankareikning. Ef bankareikningur samtaka er ekki fyrir hendi og bókhald verkefnisins fer í gegnum bankareikning einstaklings, þá verður að tilkynna nöfn og kennitölur allra ábyrgðarmanna í hópnum til NMG á info [] kulturkontaktnord.org. Þeim upplýsingum verður komið til viðkomandi skattayfirvalda.

Ef breyting verður á stjórnanda/tengilið verkefnis, ber að tilkynna það tafarlaust til Norrænu menningargáttarinnar.

Styrkþegi ber ábyrgð á að skattar og önnur gjöld af launum og greiðslum séu í samræmi við gildandi reglur í viðkomandi landi.

Strykurinn greiðist út í tveimur eða þremur hlutum, miðað við styrkupphæð.

Útborgun í tveimur hlutum (upphæðir allt að 30.000 €):

  • Fyrri greiðsla, 85 % af heildarupphæð greiðist þegar Norræna menningargáttin hefur móttekið upplýsingar um bankareikning og skráningarnúmer félags (organisation) /kennitölu.
  • Seinni greiðsla, 15% af heildarupphæð greiðist þegar NMG hefur móttekið og samþykkt lokaskýrslu og reikninga verkefnis.

Útborgun í þremur hlutum (upphæðir hærri en 30.000 €):

  • Fyrsta greiðsla, 45 % af heildarupphæð greiðist þegar Norræna menningargáttin hefur móttekið upplýsingar um bankareikning og skráningarnúmer félags (organisation) /kennitölu.
  • Önnur greiðsla, 40 % af heildarupphæð, greiðist þegar NMG hefur móttekið og samþykkt stöðuskýrslu, sem skal senda þegar verkefnið er hálfnað.
  • Þriðja greiðsla, 15% af heildarupphæð greiðist þegar NMG hefur móttekið og samþykkt lokaskýrslu og reikninga verkefnis.

Profits from the project

Ef verkefni sýnir hagnað, áskilur Norræna menningargáttin sér rétt til að draga hann frá síðustu greiðslunni og krefjast endurgreiðslu á hluta af greiddum styrk. Hlutur NMG af hugsanlegum hagnaði verkefnis, er í samræmi við hlut NMG af fjármögnun verkefnis.

3. Skýrslugerð og reikningsskilmálar

Stöðuskýrsla

Ef styrkur er hærri en 30.000 € , er önnur greiðsla ekki greidd út fyrr en NMG hefur móttekið og samþykkt stöðuskýrslu. Skýrslan sendist rafrænt gegnum notendalýsingu (User Profile) á vefsíðu á http://applications.kknord.org/user

Skýrslan skal innihalda upplýsingar um framgang verkefnis ásamt kostnaðarupplýsingum í þeim gjaldmiðli sem notaður er í verkefninu.

Skýrslan skal innihalda upplýsingar um hugsanlegar breytingar á verkefni, t.d:

  • Stjórnun (tengiliður verkefnis og stjórnandi verkefnis)
  • Innihald, framkvæmd og tímaáætlun,
  • Tekjur, kostnaður
  • Upplýsingamiðlun
  • Aðrar mikilvægar upplýsingar

Lokaskýrsla

Lokaskýrslan og reikningar verkefnis skulu send inn eins fljótt og mögulegt er, ekki síðar en 3 mánuðum eftir að verkefni er lokið. Verkefni lýkur á tímapunkti sem gefinn er upp í styrkumsókninni, nema ef NMG hefur gefið leyfi fyrir breytingu. Lokaskýrslan skal innihalda lýsingu á verkefni og niðurstöðum, ásamt meðfylgjandi kostnaðarupplýsingum í þeim gjaldmiðli sem notaður er við framkvæmd verkefnis. Lokaskýrslan sendist rafrænt gegnum notendalýsingu (User Profile) á vefsíðu NMG.

Kostnaðarupplýsigar þurfa ekki að fylgja með lokaskýrslu ef þú hefur einungis móttekið dvalarstyrk úr ferða- og dvalarstyrkjaáætluninni.

Uppgjör

Við styrk að upphæð allt að 30.000 € er ekki krafist löggilts endurskoðanda.

Ef styrkur er hærri en 30.000 €, verða reikningar verkefnis að vera yfirfarnir og undirritaðir af löggiltum endurskoðanda:

In Denmark: Registreret revisor.
Finland: HTM -tilintarkastaja (Suomen Kauppakamarin hyväksymä tilintarkastaja), GRM- revisor (av Handelskammaren i Finland godkänd revisor).
Iceland: Löggiltur endurskoðandi.
Norway: Registrert revisor.
Sweden: Godkänd revisor.

Norræna menningargáttin samþykkir endurskoðun fjármáladeilda stofnana sem nota endurskoðendur ríkis eða sveitafélaga (fjármálastjórar eða sambærilegt). Sérstakrar endurskoðunar er ekki krafist í verkefnum, þar sem styrkþegi gefur skýrslu beint til Norrænu ráðerranefndarinnar.

Reikningar Norrænu menningargáttarinnar eru endurskoðaðir af finnsku ríkisendurskoðuninni.

Styrkþegi skal ekki senda kvittanir fyrir útgjöldum til Norrænu mennignargáttarinnar. Styrksamningurinn, uppgjör og kvittanir ber að geyma eins lengi og skattayfirvöld í landi þ.s. styrkþegi er búsettur í, gera kröfu um. Kvittanir verða einnig að vera aðgengilegar fyrir NMG sem getur gert stikkprufur. Lokaskýrslan og reikningar verða að vera skilmerkilega merktir með kennitölu verkefnis.

4. Upplýsingar og samskipti

Norræna ráðherranefndin gerir kröfu um að verkefni sem hljóta styrk í gegnum áætlanir hennar, upplýsi um styrkinn í öllu birtu efni hvort sem um prentað eða rafrænt efni er að ræða. Lógó Norrænu ráðherranefndarinnar er hægt að hlaða niður af vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinnar (www.kulturkontaktnord.org > Media > NCM logo). Krækjur af vefsíðu verkefnis ber að senda til Norrænu menningargáttarinnar sem áskilur sér rétt til að nota þær á eigin vefsíðu.

Ókeypis sýnishorn

Rit, CD-plötur, CD-diskar og annað efni sem framleitt er með framlagi frá Norrænu menningargáttinni, skal sent til NMG í tveimur eintökum. Undir vissum kringumstæðum getur NMG haft áhuga á að fá fleiri eintök og biður þá sérstaklea um það.

Að auki æskir Norræna menningargáttin þess að annað efni, t.d. mynd- og/eða hljóðritað efni, rit, gagnrýni o.fl. fylgi með lokaskýrslu verkefnis.

Ef ekki er annað tekið fram, getur Norræna menningargáttin notað aðsent efni án endurgjalds, í eigin upplýsingatilgangi, t.d. á gagnagrunn og vefsíðu NMG eða í upplýsingaefni sem fjallar um Norrænu menningargáttina og verkefni sem hafa þegið styrk í gegnum áætlanir hennar. Norrænu menningargáttinni ber í slíkum tilfellum að geta heimildar.


NÝJUSTU SÝNISHORN

20.12.2011

The pollution of the Baltic Sea is a collective crime

Marjukka Korhonen's and Raimo Uunila's media artwork I wanted to go...
27.10.2011

RepNet -a cooperation between dance companies in Northern Europe

RepNet is a network consisting of five dance companies in Northern...
11.10.2011

Taboos in theatre for children and young people

A collaboration between Nordic and Latin American theater people about taboos...
20.09.2011

Momentum - Imagining being here now

Momentum is Norway’s only contemporary art biennale. It has been composed...
12.09.2011

Sami-theme at the Sommelo Folk music festival

Sommelo festival was this year conducted for the sixth time. In...