Veittir voru styrkir til 302 verkefna árið 2007 og 286 verkefna árið 2008 úr áætlunum Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnin ná yfir allan list- og menningargeirann og þáttakendur hafa verið af öllu svæðinu. Oft eru þáttakendur einnig frá öðrum löndum en Norður- og Eystrasaltslöndunum.
Stjórnsýsla Norrænu menningargáttarinnar byggir á gagnsæi og við birtum upplýsingar um öll verkefni sem hafa fengið styrk.
Að auki kynnum við úrtak verkefna sem þegar eru hafin. Sýningarkassinn okkar sýnir margskonar verkefni úr list- og menningargeiranum. Sýningarkassi Norrænu menningargáttarinnar uppfærist stöðugt.