Norræna menningargáttin er stofnun fyrir menningaráætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar; Lista- og menningaráætlunina og Ferða- og dvalarstyrkjaáætlunina. Áætlanirnar eru tímabundnar og spanna tímabilið 2007-2011.
Áætlanirnar eru opnar öllum listgreinum og menningarstarfi, en eru einungis ætlaðar atvinnufólki í listum og menningarstarfi. Áætlanirnar veita ýmis konar styrki til ólíkra verkefna, allt frá ferðastyrkjum til verkefna er ná yfir nokkurra ára tímabil.
Hægt er að sækja um nokkrum sinnum á ári. Sjá umsóknarfresti
Markmið nýju áætlananna er að skapa starfseminni ramma í ákveðinn tíma. Í lok tímabilsins eru áætlanirnar og niðurstaða þeirra metnar. Norræna menningarsamstarfið á að gagnast sem jákvæð viðbót við eigið lista- og menningarlíf landanna og sjálfsstjórnarsvæðanna.