Norræna menningargáttin sér um afgreiðslu umsókna, en ákvarðanir um styrkveitingar eru teknar af utanaðkomandi sérfræðingum.
Umfjöllun umsókna hefst þegar umsóknarfestur rennur út. Norræna menningargáttin skráir umsóknir sem borist hafa og sendir þær áfram til umfjöllunar sérfræðinga. Nokkrir sérfræðingar fjalla ávallt um hverja umsókn og dæma hana m.t.t. matsþátta áætlananna. Það er enginn kvóti notaður, gæði verkefna ráða við ákvarðanatöku.
Sérfræðingarnir eru búsettir og starfandi á norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum, og eru í samskiptum sín í milli og við Norrænu menningargáttina í gegnum rafræna umsóknarkerfið. Sérfræðingarnir hittast nokkrum sinnum á ári til að ræða umsóknirnar og þróun áætlanana.
Umfjöllun umsókna tekur u.þ.b. átta vikur frá því að umsóknarfrestur rennur út. Þegar sérfræðingarnir hafa tekið ákvörðun, sendir Norræna mennigargáttin öllum umsækjendum upplýsingar um hvort verkefni þeirra hafi fengið styrk eða ekki.
Kvörtun vegna styrkákvarðana
Ekki er hægt að senda inn kvörtun vegna einstakra umsókna. Ef þú sem umsækjandi hefur tillögur til að bæta áætlanirnar, þá getur þú sent þær til skrifstofu Norrænu menningargáttarinnar.