Áætlunin er opin öllum lista- og menningargreinum. Umsækjandi getur verið einstaklingur eða samtök, en styrkur er almennt ekki veittur starfsfólki við opinberar stofnanir.
Áætlunin er opin fyrir umsóknir nokkrum sinnum yfir árið. Nánari upplýsingar á Umsóknartímar .
Norræna menningargáttin notar rafrænt umsóknarkerfi. Rafrænt umsóknareyðublað er aðgengilegt hér á www.kulturkontaktnord.org þegar umsóknartími er opinn. Þú fyllir út eyðublaðið og sendir á Norrænu menningargáttina. Við samþykkjum ekki pappírsumsóknir. Nánari upplýsingar um útfyllingu umsóknar er að finna undir „útfylling umsóknar“.
Við mælum með að umsókn sé útfyllt tímanlega áður en umsóknarfestur rennur út. Ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfestur rennur út.
Umsækjendur eru margir og mikil samkeppni um styrkina svo það er mikilvægt að skrifa umsókn með skýra lýsingu á verkefni og fjárhagsáætlun þess. Lestu matsþætti áætlunarinnar, þeir eru notaðir við val á verkefnum sem fá fjárstyrk hverju sinni.