A A A

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010

Þriðjudagur, 30 Mars 2010 10:39

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir verkið Puhdistus (Hreinsun).

Með þriðju skáldsögu sinni sýnir Sofi Oksanen (fædd 1977) virkilega hvað í henni býr. Á ríkan og tjáningarfullan hátt fléttar hún hér saman  frásögn um sögulega viðburði, hernám Sovétmanna í Eistlandi,  og brennandi alþjóðlegt vandamál í samtímanum, mansal á Eystrasaltssvæðinu.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:
„ Skáldsögu Sofi Oksanen Puhdistus ( Hreinsun) vindur fram á  tvennum ólíkum tímum í Eistlandi, en þemu skáldsögunnar eru alls óháð tímanum;  ást, svik, völd og valdleysi . Á hárfínan hátt lýsir Oksanen því hvernig sögulegir viðburðir geta leikið  einstaklinginn og skráir um leið söguna hér og nú. "

Bókmenntaverðlaunin nema andvirði 350 þúsundum danskra króna. Þau verða afhent Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í lok október 2010. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 1962.

Lesa meira

 

Skriv en kommentar

Twitter

GERÐUST ÁSKRIFANDI AÐ FRÉTTABRÉFI NORRÆNU MENNINGARGÁTTARINNAR