Föstudagur, 21 Maí 2010 07:49
Búast má við að menningar- og sköpunargreinar fái ný tækifæri til að vaxa í Norður-Evrópu og að stjórnmálamenn veiti þeim aukna athygli. Ástæðan er nýr samningur, Northern Dimension Partnership on Culture, sem ESB, Rússland, Noregur og Ísland hafa gert með sér.
Sköpunariðnaður og menningarlíf í Norður-Evrópu fá nú betri tækifæri til fjárfestinga, fjármögnunar og vaxtar. Alla vega ef farið verður að vilja ríkisstjórna Norður-Evrópuríkja. Samningur þessara þjóða var undirritaður í Pétursborg í dag, en fulltrúar þeirra urðu sammála um nýja umgjörð fyrir þessa vaxandi atvinnugrein.
- Mikilvægt er að ítreka að með samningnum viljum við fyrst og fremst mynda betri umgjörð um samstarfið og skapa ný vaxtarskilyrði fyrir menningarlíf og sköpunariðnað í Norður-Evrópu. Það kemur svo í hlut málsaðila að skilgreina verkefnin. Samningurinn er pólitísk ákvörðun um að greiða fyrir nýju samstarfi, sagði Michael Weeb, aðstoðarframkvæmdastjóri sendinefndar ESB í Rússlandi.
Samningurinn var undirritaður á alþjóðlegu menningarþingi Norrænu ráðherranefndarinnar sem stendur yfir í Pétursborg 20.-21. maí. Þar hittast fulltrúar menningarlífs, sköpunariðnaðar og menningarstofnana, auk embættismanna frá 11 ríkjum til að ræða hvernig styðja megi við sköpunariðnað á því svæði sem norðlæga víddin nær til.
Evróplöndin ræða um þessar mundir hvernig þróa megi svokallað sköpunarhagkerfi og þar með skapa störf og tryggja velferð en jafnframt þróa ný fjármögnunar- og fjárfestingarverkfæri.
NDPC verður viðbót við þau samtök og stofnanir sem fyrir eru í þjóðlöndunum og á alþjóðavettvangi og vinna að því að efla sköpunariðnað, menningarsamstarf og mannaskipti. Samstarfið verður þannig vettvangur sem getur stuðlað að umræðum og miðlun bestu framkvæmdar á sviði menningar og sköpunariðnaðar.
NDPC er fjórða samstarfsverkefni norðlægu víddarinnar og kemur í kjölfar samstarfsverkefna á sviði umhverfisverndar, samgangna og heilbrigðis- og félagsmála. Norræna ráðherranefndin hefur átt frumkvæði að og stutt þróun NDPC og skipuleggur menningarþingið í samstarfi við borgaryfirvöld í Pétursborg og rússneska menningarmálaráðuneytið.
www.norden.org